kannski ekki alveg svona hús

Hús í Beverly Hills í Kalíforníu hefur verið auglýst til sölu fyrir 165 milljónir dala, jafnvirði rúmlega 10 milljarða króna, og mun húsið þar með vera dýrasta einbýlishús í Bandaríkjunum.

Á sama tíma hefur það borist mér til eyrna að Bolvíkinga greiði 300 milljónir í fjármangstekjuskatt til íslenska ríkisins. Maður er nú ekkert að agnúast út í stóra bróðir þótt hann fái svona mikið í vasann, en samt!

Ég segi nú ekki að við ættum að fara eyða í svona fínerís hús, en svei mér ef það kæmi sér ekki vel fyrir sveitarfélagið ef eitthvað af þessum milljónum myndi skila sér aftur heim í sveitasjóðinn!

Segjum að við fengum svona bara 100 milljónir aftur heim,

 þá væri hægt að gera við göturnar áður en gömlu konurnar og börnin týnast í holunum.

Það væri hægt að byggja myndarlega við Leikskólann,

Það væri hægt að hafa leikskólann og mötuneyti grunnskólans gjaldfrjálst.

Það yrði strax farið að gera við Félagsheimilið.

já bara 100 milljónir Blush


mbl.is Hús til sölu fyrir 10 milljarða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þú verður ,,bara" að hjóla í ríkið og heimta milljónirnar heim, því auðvitað eigið þið að fá ykkar hlut af þeim, það sér hver heilvita maður.

Harpa J (IP-tala skráð) 17.7.2007 kl. 09:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband