27.1.2009 | 13:16
Í dag skein sól í Seljadalnum
Sólin bjarta sendi geisla
sínir okkur vorsins kjól
allra orku óðum beislar
okkur lofar dýrð um ból
- þetta datt mér í hug þegar sólin sendi geisla sína inn til mín úr Seljadalsskarðinu.
Hérna er mynd heiman frá Brekku á Ingjaldssandi, í dag 27. janúar á sólin að sjást þar aftur, þannig ég mátti til að setja þessa fallegu vetrarmynd,
ljósmyndari: Hreinn Ásgeir
Athugasemdir
Flott hjá þér, Halla. Fór einmitt í göngutúr í gær og náttúran skartaði sínu fegursta, þó farið væri að rökkva og sólin langt í burtu.
Helga Dóra (IP-tala skráð) 28.1.2009 kl. 10:28
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.