11.5.2007 | 08:50
Jafnrétti
Alveg fannst mér bréf Einars Odds til bænda með yfirskriftinni "kæri vinur" vera í stíl við jafnréttishugsjónir Sjálfstæðisflokksins.
Konurnar hjá þeim eru nefnilega alltaf aðeins til hliðar eins og má sjá þegar litið er á ábyrgðarstörfin innan flokksins. Þeir vita nákvæmlega hvar þeir eiga að setja konurnar, svona akkurat á hliðarlínuna. Hafa þær með en bara upp á punt.
ég fór inn á xd.is til að finna jafnréttismálin inn í stefnuskránni. Fann það ekki. Enda hafa þeir ekki farið með málefni jafnréttis síðustu kjörtímabil,,, ekki nema von þeir gleymi þeim.
Einar Oddur er svo sem búin að biðjast afsökunar á þessum mistökum, Einar er líka ágæt persóna. En þetta hafa líklega verið tæknileg mistök.
Athugasemdir
Já, tæknileg mistök sjálfstæðis liggja óþægilega víða, ég virði það við Einar að viðurkenna þau. En það voru líka tæknileg mistök að Árni nokkur Jónsen skuli vera tekinn í annað sæti í Suðurkjördæmi og það fram fyrir þingflokksformann þeirra.
Er það tilviljun að það skuli vera kona???? Í norðaustur kjördæmi var Auðbjörgu kippt aftur fyrir Kristján sem kom þar nýr inn. Er það tilviljun að það er kona sem heftur unnið hörðum höndum fyrir sjálfstæðisflokkinn? Hér í norðvestur kjördæmi var kona fyrst í 7 sæti, hvað gerðist. Flokkurinn jók fylgi sitt! Og engin kona kemst á þing frá Sjálfstæðisflokknum, samt fara líklega 3 menn inn. Þó sjálfstæðisflokkurinn haldi ótal leiðtoganámskeið og allt fyrir konur hér , komast þær ekki að.
Ég spyr, hvað ætla sjálfstæðiskonur að sætta sig lengi við að vera bundnar á bás hefðanna og sætta sig við það sem að þeim er rétt?
Helga Dóra (IP-tala skráð) 11.5.2007 kl. 10:19
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.