Kosningar framundan

 

 Nú fer að nálgast kosningar, hvað skal kjósa?

Bæklingarnir hrúgast inn um bréfalúguna hjá okkur sem allir reyna að upplýsa okkur um ágæti síns málstaðar. Flokkarnir lofa, hræða, og hrekja.

Ég sem bý í Norðvesturkjördæmi get valið milli sex framboða. Ég hef alltaf kosið framsóknarflokkinn en ég settist niður í vetur og hóf að endurskoða mat mitt á valinu og í framhaldi til að vera staðföst í hvað ég vildi í vor. Þrátt fyrir að ég hugsi málið í hring finn ég ekki þann flokk annan sem getur fallið betur að skoðunum mínum en X-B.

Mér finnst framsóknarflokkurinn vera eini raunhæfi byggðastefnuflokkurinn sem komið hefur fram.

Með Jóni Sigurðssyni held ég að sé kominn fram mjög öflugur og yfirvegaður formaður stjórnmálaafls sem getur haldið sér þokkalega fyrir miðju. Ég myndi vilja sjá hann í fyrirrúmi með nýrri ríkisstjórn sem hefði meiri vinstri stefnu heldur en núverandi ríkisstjórn er að sýna.

Ég vil að framsókn hætti að sleikja sér upp við sjálfstæðisflokkinn sem hefur lítið sem ekkert gert í byggðastefnumálum fram til þessa. Stopp nú í þeim málum, það hjónaband er búið að vera.

 Á undanförnum mánuðum hefur framsóknarráðherrar fært hingað til Bolungarvíkur loforð um fjármagn um þrjú stöðugildi, annarsvegar í félagsmálum Bolungarvíkurkaupstaðar og hins vegar tvö stöðugildi til heilbrigðisstofnunar Bolungarvíkur sem á að stuðla að aukinni heimaþjónustu aldraðra.

Hvar eru störfin sem háttvirtur sjávarútvegsráðherra, sem þó á allar sínar rætur að rekja hingað til Bolungarvíkur, hefur fært okkur? Það eina sem heyrist frá sjálfstæðismönnun í stöðu í atvinnumálum hér á svæðinu núna er að þetta sé tímabundið ástand! Þetta er frekar þurr koss á bágtið.

 Stefnu samfylkingunnar í landbúnaðarmálum finnst mér alveg út í hött, og hefur alltaf verið copy paste af stefnum jafnarðarmanna frá því um 1950, enda hafa þeir engan áhuga á þessum málefnum og hafa ekkert vit á þeim. 

Vinstri grænir eru umhverfissinnar og er það vel, en það þarf að hafa byggðastefnu. Þeir vilja helst autt dreifbýli og það eina lifandi sem á að sjást þar eru þrestir og sóleyjar. Það þarf að gæta meðalhófs í þessu líkt og í örðu. 

Í  hin framboðin eyði ég ekki orku né atkvæðispælingum.

X-B 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband